trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 16/07/2014

Hraun í Öxnadal

Eftir Hannes HafsteinHannes Hafstein

„Þar sem háir hólar

hálfan dalinn fylla“

lék í ljósi sólar,

lærði hörpu að stilla

hann sem kveða kunni

kvæðin ljúfu, þýðu,

skáld í muna og munni,

mögur sveitablíðu.

 

Rétt við háa hóla,

hraunastalli undir,

þar sem fögur fjóla

fegrar sléttar grundir,

blasir bær við hvammi

bjargarskriðum háður.

Þar til fjalla frammi

fæddist Jónas áður.

 

Brosir laut og leiti,

ljómar fjall og hjalli.

Lækur vætu veitir,

vökvast bakka halli.

Geislar sumarsólar

silungsána gylla

þar sem háir hólar

hálfan dalinn fylla.

 

Hannes Hafstein (1861-1922)

Flokkun : Ljóðið
1,426