Hógværðin
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands segist ekki hafa viljað skyggja á Vigdísi Finnbogadóttir með því að mæta á athöfnina sem haldin var í tilefni af því að 35 ár eru liðin frá því að hún var kosin forseti Íslands.
Þetta kom fram í viðtali við hátignina á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Ólafur var gagnrýndur fyrir að hafa farið úr landi til þess að spjalla við auðkýfing og borða með honum kvöldmat daginn sem Vigdís var heiðruð. Um þá gagnrýni sagði hann samkvæmt því sem prentað er í Morgunblaðinu:
„Mér finnst sérkennilegt að hlusta á þessa gagnrýni. Þetta var ekki opinber athöfn heldur viðburður til að heiðra Vigdísi persónulega. Ef ég og aðrir forsvarsmenn þjóðarinnar hefðum mætt þá hefðum við verið að skyggja á eðli samkomunnar. Þarna var veriðað heiðra Vigdísi persónulega fyrir hennar mikla sögulega hlutverk og mér fannst að hún ætti að fá að njóta þess ein og sér með fólkinu án þess að ég eða aðrir færum að koma á þann vettvang.“
Það er upplífgandi fyrir landsmenn að sjá að forsetinn hefur ekki látið tign embættisins éta úr sér hið alkunna lítillæti sitt.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020