Hér og nú (Til Hornsteins)
Eftir Ísak Harðarson
Ég byggði mér haf við húsið,
en húsið sagði: „Æ, þú,
hér er ég eitt sem heiti
hér og nú.“
Í kvöldsins hamslausa hasar
horfði ég sjónvarpið á:
Vitfirrt er þessi veröld
– vá!
Og hugur minn glúpnaði af Guði
og geðklofans útgöngu smó,
en minntist fyrst alls sem hann unni
& Co.
Í nótt mun ég sökkva í sortann
og synda frá hér og nú,
að finna hinn eilífa anda,
Appbú.
Að sigra heiminn
I : Kapall
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingssvip við einhvern veslings bjálfann:
Þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því þú ert að spila við þig sjálfan.
II : Nóló
Hve margt þú setur undir, ljóst og leynt,
og laumast jafnvel til að stela og snapa.
Þótt líf þitt sé í veði sérðu seint
að sigurinn er fólginn í að tapa.
Júníhefti 2012, ort haustið 2008 í tilefni af aldarafmæli Steins Steinarrs
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021