Gjafmildi
Hugmyndafræðingur Framsóknarflokksins lýsti því í vikunni hvort ekki ætti að gefa Íslandsbanka þegar þar að kæmi. Orðrétt sagði hann að það ætti „að skoða þann möguleika að afhenda almenningi hluta bankans gegn skýrum skilyrðum og á hagstæðum kjörum… og að ekki sé hægt að framselja hlutina í von um skyndigróða.“
Þetta þótti formanni Sjálfstæðisflokksins slíkt heillaráð að hann stakk upp á því sama í setningaræðu sinni á landsfundi flokksins nú í dag; að gefa landsmönnum Íslandsbanka. Samkvæmt sjónvarpsútsendingu datt allt í dúnalogn á fundinum þegar formaðurinn nefndi þetta. Þögnin varði í nokkrar langseigar sekúndur áður en lófaklapp rauf hana. Hvernig á að túlka kyrrðina ræðst af hugarflugi og þekkingu hvers og eins sem hana nam.
En þetta er skemmtilegt. Hafin er samkeppni í gjafmildi á milli stjórnarflokkanna rétt eins og kosningar séu á næsta leiti. Landsmenn eiga gósentíð í vændum. Þeim verður gefinn banki.
Sum sé:
Ráðamennirnir okkar ætla að gefa okkur 5% af Íslandsbanka. Bankanum sem við munum eignast ef „stöðugleikamálin“ fara eins og herrarnir ætla. Þeir ætla að vera svo góðir við okkur að gefa okkur það sem við eigum .
Það er reisn yfir þeim!
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020