Fyrrverandi ríkisskattstjóri: Þjóðin fær í mesta lagi tíu prósent af arðinum af fiskinum
Það að skammta þjóðinni 10% af arði eigin auðlindar er eins og að henda beini fyrir hund eða brauðmolum fyrir smáfugla.
Þetta er niðurstaða Indriða H. Þorlákssonar, fyrrverandi ríkisskattstjóra, í öðrum hluta greinaflokks hans í Herðubreið um hugmyndir ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum.
Indriði rekur opinberar tölur og staðreyndir um rekstur sjávarútvegsins, og óhætt er að segja að niðurstaðan sé afgerandi.
Betri afkomu í sjávarútvegi má að mestu leyti rekja til gengisfalls krónunnar, sem þýðir hins vegar hærra verð á lífsnauðsynjum og þar með verri kjör alls almennings.
Veiðigjöld síðastliðin ár nema einungis tíu prósentum af arði í greininni. Ef tekið er tillit til þess kostnaðar sem hið opinbera hefur af sjávarútveginum og þjónustu við hann hefur sameiginlegur arður þjóðarinnar af auðlindinni á sama tímabili verið enginn.
Grein Indriða í greinaflokknum er hér.
- Innan við múrvegginn - 15/01/2021
- Fjárhúsið að sumri til og fleiri þankar - 29/12/2020
- Gamall húsgangur - 24/12/2020