Frelsari
Við eigum stórmenni, Íslendingar. Frelsara. Þetta er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Því miður hafa mörg okkar ekki tekið eftir því. En nú hefur okkur verið bent á það svo ekki verður hrakið. Og það af tveimur.
Fyrri ábendingin kom að utan. Það er gæðastipill. Orð SDG í breska dagblaðinu Daily Telegraph. Útvegs-Mogginn færði okkur þau á sunnudaginn og segir eftir Sigmundi, að fulltrúar íslenskra stjórnvalda hafi verið í nánu samstarfi evrópska ráðamenn við að leita leiða til þess að koma í veg fyrir að frekari fjármálaerfiðleikar ættu sér stað í framtíðinni.
Og hér gefur á að líta. Þetta er kviknakin snilld. SDG segir:
„Ég myndi vilja sjá það endurskoðað hvernig við nálgumst þetta mál. Sem þýðir að við kunnum að þurfa að horfast í augu við að svo kunni að vera að það fyrirkomulag sem hefur verið hannað innan kerfisins, þar sem fjármagn flæðir frá einum stað til annars, sé ekki besta eða öruggasta leiðin til þess að starfrækja fjármálakerfi.“
Eftir að Útvegs-Mogginn birti þjóðinni þessa orðleikni og fersku hugmynd mætti hinn eitursnjalli formaður fjárveitinganefndar alþingis, Vigdís Hauksdóttir í útvarp, skellti verðmætamati á formann sinn og lýsti þessu yfir: „…þannig að líklega er nú Sigmundur Davíð verðmætasti stjórnmálamaður landsins frá lýðveldisstofnun.“
Það er stór merkilegt að til skuli vera mælistokkur sem hægt er að bregða á manninn og sjá hversu mikils virði hann er í krónum talið. Að öllum líkindum er rétt að fara leynt með þetta því að þarna er mikil auðlind. Hugsanlega nýr útflutningsvegur fyrir okkur. Mannvit. Í tilefni af þeirri launung sem þarf að vera yfir þessari nýlundu þori ég ekki einu sinni að spyrja Vigdís Hauksdóttir hvað fengist fyrir frelsarann sem svo auðveldlega getur bjargað Evrópu úr langvarandi vanda. En árans ósköp langar mig til þess.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020