Forstjóri Landspítala: „Kostnaðurinn verður ekki minni þótt maður áætli hann lægri.“ – Algert skilningsleysi og spírall undirfjármögnunar
„Í morgun var ég ásamt framkvæmdastjóra fjármálasviðs boðaður á fund fjárlaganefndar Alþingis til að veita upplýsingar um áhyggjur okkar og mat á stöðu mála.“
Þetta skrifar Páll Matthíason forstjóri Landspítalans í grein á vef spítalans. Hann bætir við meðal annars:
„Þar útskýrðum við það, að þrátt fyrir þá fjármuni sem til spítalans hafa runnið síðustu tvö árin og við metum mikils, þá er staðreyndin sú að enn vantar töluvert upp á að fjármögnun spítalans sé í samræmi við verkefni. Framkoma forystu fjárlaganefndar og skilningsleysið á þörfum þeirrar grunnþjónustu fyrir almenning sem sjúkrahúsið veitir olli mér vonbrigðum. Vonbrigðum í ljósi mikilvægis og umfangs málaflokksins og þess skýra vilja þjóðarinnar sem kemur fram í skoðanakönnun eftir skoðanakönnun; að forgangsraða eigi í þágu heilbrigðisþjónustunnar umfram annað.“
Páll lýsir þessum viðhorfum forystu fjárlaganefndar ekki frekar, en formaður hennar er Vigdís Hauksdóttir og varaformaður Guðlaugur Þór Þórðarson.
Páll segir ennfremur:
„Vegna löngu fyrirsjáanlegra breytinga á samsetningu þjóðarinnar eykst álag á spítalann mjög ár frá ári. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir auknu álagi í fjárlögum svo spítalinn fær í raun á sig 1,7% sparnaðarkröfu á ári (meðalálagsaukning per ár frá 2010) og allt það fé sem við fáum inn byrjar í rauninni á að mæta því aukna álagi. Þannig er orðinn hér spírall undirfjármögnunar sem erfitt er að vinda ofan af nema menn horfist í augu við staðreyndir.“
Og: „Kostnaðurinn verður ekki minni þótt maður áætli hann lægri.“
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021