Forsætisráðherra segir ósatt um sms-styrki. Fylgdi ekki verklagi síðustu ríkisstjórnar
Það er ekki rétt, sem forsætisráðherra fullyrti í útvarpsfréttum í gær, að hann hafi fylgt verklagsreglum fyrri ríkisstjórnar þegar hann úthlutaði styrkjum í árslok 2013.
Ráðherrann sagði orðrétt í frétt Ríkisútvarpsins: „Þarna var hins vegar ákveðið fyrirkomulag sem að við tókum við frá síðustu ríkisstjórn.“ Þetta er ekki rétt, eins og Björn Valur Gíslason bendir á í grein og skrifar:
„Úthlutaði Jóhanna einhverntímann styrkjum til þeirra sem ekki báðu um þá? Eru dæmi um að Jóhanna hafi sent fólki styrki með SMS skilaboðum? Hvenær úthlutaði Jóhanna helmingi styrkja í sitt eigið kjördæmi?
Staðreyndin er sú að þetta er allt ósatt hjá forsætisráðherranum eins og fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um dæmalausa meðferð ráðherrans á almannafé. Það eru engin dæmi um viðlíka vinnubrögð og hann hefur ástundað. Á síðasta kjörtímabili úthlutaði sérstök ráðherranefnd styrkjum í samráði við fagráðuneytin til ýmissa verkefna sem annað hvort voru ákveðin af Alþingi eða samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar sjálfrar.
Forsætisráðherra virðist líta svo á að sannleikurinn sé sjaldgæf og takmörkuð auðlind sem beri að fara sparlega með.“
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021