Flóttamaðurinn
Þau eru skilin að skiptum, hið hugumstóra og djarfmælta par, Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór; formaður og varaformaður fjárlaganefndar alþingis. Þau sem voru svo sæl saman. Og eindregin í öllu.
Forsaga skilnaðarins er að þau hjúin sömdu saman „skýrslu“ um löngu upplýst mál og birtu hana í nafni meirihluta fjárlaganefndar alþings. Þau töluðu fyrir henni í öllum fjölmiðlum. Voru í kastljósinu. Böðuðu sig þar. Stutta stund; þegar innihaldið varð ljóst flissuðu landsmenn og forseti alþingsins kvað upp þann úrskurð að þetta væri ekki skýrsla, frekar svona glósur. Þá var málið tekið fyrir í nefndinni sem „skýrslan“ var eignuð. Og þá fór í verra. Þar kannaðist enginn við króann. Ekki Guðlaugur Þór. Enginn nema Vigdís ein.
Guðlaugur Þór sagði við mbl.is „að það sé þó ekki vegna þess að einhverjir séu að hlaupa frá málinu heldur …. snýst málið einfaldlega um það að menn fari að ræða efnisatriði málsins í stað þess að tala endalaust um formið.“ Merkilegt. Merkilegt. Og mbl.is bætti því við að þannig hafi verið ákveðið að Vigdís skrifaði sig ein fyrir skýrslunni enda hefði hún unnið hana að mestu leyti.
„Nú er þetta bara skýrt, þetta er skýrsla hennar,“ sagði hann, riddarinn hugumprúði, staðgengill Vigdísar. Síðan var „skýrslunni“ vísað frá fjárlaganefnd til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar af meirihlutanum, sem upphaflega samdi „skýrsluna“. Af þeim öllum. Öllum nem Vigdísi. Hún er ein. Var skilin ein eftir.
Á meðan meirihluti nefndarinnar ( Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson, Páll Jóhann Pálsson og Valgerður Gunnarsdóttir) var að undirbúa flótta frá höfundarábyrgð á verki sínu á háttsettur embættismaður að hafa hótað höfundunum „æru- og eigna missi“ vegna „skýrslunnar“, eins og mbl.is orðar það, og segir Guðlaugur Þór, sjálfur „að það mál sé einfaldlega í ferli.“
Hann er sum sé farinn, farinn frá henni, Vigdísi, flúinn, Guðlaugur Þór, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður/suður, sómi síns flokks og ráðherraefni. Samt er hann ekki farinn; „það er enginn að hlaupa frá málinu,“ segir hann á sprettinum.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020