trusted online casino malaysia
Margrét Tryggvadóttir 20/09/2015

Flóttafólk, lifrarbólgulyf og fátækt fólk

Eitt sem er óþolandi í íslenskri umræðu er þegar fólk lætur sem allt sem við viljum gera vel og kostar peninga þurfi að bitna á þeim sem minnst mega sín í samfélaginu. Og eins að staða þeirra sem eru verst settir í samfélaginu sé náttúrulögmál sem ekkert fái haggað og að meðan því fólki hafi ekki verið bjargað getum við ekkert gert fyrir aðra. Og mörgum virðist ekki detta í hug að misskiptinguna sé hægt að laga.

Júlía Birgis vinkona mín orðaði þetta ágætlega í athugasemd í facebook sem mér finnst eiga erindi við fleiri:

Ég legg til að það verði aftur tekinn upp auðlegðarskattur (sem var ca 11 milljarðar á ári í tekjur, minnir mig) og þessar tekjur yrðu eyrnamerktar flóttafólki, heimilislausu fólki á Íslandi og fólki sem þarf á lyfjameðferð að halda til að bjarga lífi sínu (ekkert endilega tæmandi listi en ég held að 22 milljarðar á 2 árum gætu bjargað mörgum lífum). 

Með vandamál af þessari stærðargráðu þá eru 2 milljarðar ekkert rosaleg upphæð.

Amen.

rich-v-poor-e1422687425883

Flokkun : Efst á baugi
1,392