Farsæld
Það verður skýrara með hverjum deginum sem líður að íslenska heilbrigðiskerfið er að molna. Í vefmiðlinum Pressunni, 28.03. 2015, birtir Gústaf Adolf Bergmann Sigurbjörnsson kostnaðarsamanburð sem hann gerði á íslenska og danska kerfinu. Í febrúar 2014 var hann í Danmörku, fékk svæsna lungnabólgu, fór með sjúkrabíl á sjúkrahús í Hvidovre. Þar lá hann í fimm daga. Útlagður kostnaður var þessi:
- Heimsókn til læknis á dagvinnutíma: 0 krónur.
- Sjúkrabílferð til Hvidovre: 0 krónur.
- 5 daga vistun á Hvidovre: 0 krónur.
- Sýklalyf sem hann fékk heim til að klára kúrinn: 0 krónur.
- Samtals: 0
Á dögunum fór Gústaf til myndatöku upp í Domus Medica. Í ljós kom að hann hafði fengið snert af lúgnabólgu. Hann var settur á pensillín og náði bata. Þetta var sum sé ekki eins alvarlegt og árið áður. Kostnaðurinn varð þó öllu meiri. Um það hvernig Íslenska heilbrigðiskerfið „tekur á smávægilegri sýkingu“ segir Gústaf:
- Heimsókn til læknis á dagvinnutíma: 1.200 krónur.
- Röntgen á Domus Medica: 4.200 krónur.
- Sýklalyf: 2.700 krónur.
- Samtals: 8.100“
Enginn sjúkrabíll, engin innlögn, en dýrari leið til bata.
Kynslóðin sem með sköttum og skyldum kom heilbrigðiskerfinu á legg er ýmist farin til feðra sinna eða á leiðinni þangað. Þau, sem ekki hafa enn kvatt tilveruna, eiga mörg hver í basli af ýmsum sökum. Margir hafa ekki efni á að nýta sér kerfið og kerfið vanrækir þá. Gamalt fólk situr á hakanum. Orsökin er sú að afkomendur þeirra, þeir sem stýra landinu, hundsa heilbrigðiskerfið, sumir af þekkingarleysi, aðrir með þeim ásetningi að láta einkavæða það.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020