trusted online casino malaysia
Úlfar Þormóðsson 13/10/2015

Falsspámenn

Bankarnir eru með spádeildir. Þar starfa lærðir viðskipta- og hagfræðingar. Þeir hafa takmarkalítinn aðgang að blöðum, útvarpi og sjónvarpi þegar þeir flytja spádóma sína, sem undantekningarlaust er hvatning til bankasviðskipta af einhverri sort. Eitt af því sem þeir fást við er að gera þjóðhagsspár eitt, tvö, þrjú ár fram í tímann. Því er haldið að þjóðinni að það sé full ástæða til þess að taka mark á þessum mönnum.

old-man

Framkvæmdastjóri fjár­fest­inga­bankasviðs Ari­on banka hefur átt í baxi við að verja það að nokkrir valdir bankavinir fengu að kaupa hjá bankanum hlutabréf í Símanum áður en þau voru sett á almennan markað. Hans fyrsta ráð var að segja eins og er; hann lýst spámenn bankans vanhæfa með eftirfarandi yfirlýsingu: Það sem „lá ljóst fyr­ir í dag að loknu útboði lá ekki ljóst fyr­ir nokkr­um vik­um og mánuðum áður en útboðið fór fram.“ Síðan bendir hann á að eft­ir­spurn í hluta­fjárút­boðum sé mis­jöfn og að ekki hafi verið hægt að gefa sér niður­stöðuna fyr­ir­fram.

Og þetta sáu hámenntaðir reiknimeistarar og spámenn ekki fyrir; þó átt að selja landsþekkt fyrirtæki nokkrum dögum eftir að vildarvinirnir fengu bréf sem hækkuðu um 30% þegar almenna útboðið var haldið. Þetta eru sömu menn og hikstalaust segja okkur fáfróðum hvaða áhrif launahækkanir muni hafa á verðbólguna, hversu mikið íbúðahúsnæði muni hækka á komandi mánuðum, hversu há vísitala kauplags og verðlags verði eftir þrjú ár með tilliti til fjölda ferðamanna, áætlaðs inn- og útflutnings, aflabragða, veðurfars og fjölmargra annarra þátta sem í skýrslum heita „óvissuþættir.“

Og annar stjóri í viðskiptum, sá sem seldi afgangsbréfin í Símanum að loknu vinavalinu, birtist Moggaþjóðinni til að verja sitt lén; forstjóri Kauphallar Íslands. Það veður á honum í blaðinu; segir að það hafi „orðið vatna­skil á markaði eft­ir til­kynn­ingu stjórn­valda um af­nám hafta. Hluta­bréf hafa hækkað mikið og viðskipti auk­ist gríðarlega.“ Hann bend­ir og á að úr­vals­vísi­tal­an hafi hækkað um 21% frá 8. júní, þegar áætl­un­in var kynnt og segir veltu á hluta­bréfa­markaði hafa tvö­fald­ast eft­ir 8. júní, miðað við sama tíma­bil árið áður, og velta á skulda­bréfa­markaði auk­ist um 70%. Hann áætl­ar að bein eign heim­ila í hluta­bréf­um sé nú um 60 millj­arðar, 15 millj­örðum meiri en í apríl­byrj­un.

Takið eftir þessu: Hann áætl­ar að bein eign heim­ila í hluta­bréf­um sé nú um 60 millj­arðar, 15 millj­örðum meiri en í apríl­byrj­un. Hvernig veit hann þetta maðurinn? Er hann að grúska í bókhaldi  landsmanna og framtölum? Og veit hann þá hvaða heimili um er að ræða? Eða er hann giska, eða bara að slá um sig og skrökva öllu þessu eins og spámenn bankanna gera þegar þeir birtast okkur í útvarpi, sjónvarpi og blöðum?

Latest posts by Úlfar Þormóðsson (see all)
Flokkun : Efst á baugi
1,470