trusted online casino malaysia
Margrét Tryggvadóttir 29/09/2014

Erindi til stjórnarskrárnefndar

Í júní s.l. sendi stjórnarskrárnefnd, undir forystu Sigurðar Líndal frá sér áfangaskýrslu. Hún hefur kallað eftir viðbrögðum við því plaggi, sjá nánar hér. Mér finnst sjálfsagt að verða við því og vil hvetja sem flesta til að gera slíkt hið sama. Svona er mitt bréf:

Ágæta stjórnarskrárnefnd,

ég vil nota tækifærið og þakka fyrir áfangaskýrslu ykkar frá því í júní s.l. Með henni má nokkuð glöggva sig á vinnu nefndarinnar og hvaða tökum ríkjandi stjórnvöld virðast ætla að taka stjórnarskrármálið.

Ég vek athygli á því að það sem þið hafið verið að gera síðan nefndin var skipuð hefur verið gert ótal sinnum áður og liggur sú vinna fyrir. Á síðasta kjörtímabili var þjóðin öll kölluð að borðinu og eftir þá ágætu vinnu liggur fyrir frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Það frumvarp hefur verið borið undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem stærstur hluti kjósenda lýsti sig fylgjandi því að tillögur stjórnlagaráðs yrðu lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Það frumvarp var svo fullunnið á vettvangi Alþingis og ekkert eftir að gera nema samþykkja það og lögfesta.

Það er óásættanlegt að farið sé aftur á byrjunarreit í þessu máli og vilji kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu sé hafður að engu. Eina leiðin til að bjarga því sem eftir er af virðingu Alþingis og stjórnmálastéttarinnar er að sjá til þess að þjóðin fái sem fyrst þá nýju stjórnarskrá sem kallað hefur verið eftir.

Með kveðju,

Margrét Tryggvadóttir

Erindi skal senda á postur@for.is fyrir 1. október.

 

RGB_til_stakkunar

Flokkun : Pistlar
1,302