trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 08/05/2014

Ekkert svar

Eftir Guðrúnu Árnadóttur

Ég ætlaði að skrafa við skylduna orð

það skeður þá loksins nú.

„Ég saka þig um minnar sálar morð.

Hverju svarar þú?“

 

„Er grauturinn soðinn,

er bótin bætt,

eru burstaðir allir skór?

Eru bónuð gólfin,

er brauðið ætt,

og fest þessi tala, sem fór?“

 

– Minnar sálar morð – var ei svara vert.

Og svo hef ég ekkert gert.

 

Guðrún Árnadóttir (1900-1968)

Flokkun : Ljóðið
1,402