„Ekkert fer verr með þá lægst launuðu en verðbólgan.“ Gagnleg upprifjun á nýliðinni sögu
Á níunda áratug síðustu aldar hækkuðu laun um 1.600 prósent samkvæmt kjarasamningum. Kaupmáttur lækkaði á sama tíma um 10 prósent. Laun lækkuðu því að raunvirði þrátt fyrir þessar gríðarmiklu kauphækkanir að nafnvirði.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirgripsmikilli grein sem Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, skrifar í Herðubreið.
Guðmundur var á þessum tíma og síðar einn af helstu stefnumótendum Alþýðusambandsins í því sem kallað hefur verið „Þjóðarsáttin“ og almennt hefur verið talin ein best heppnaða aðgerð stjórnvalda og vinnumarkaðarins til að koma á stöðugleika og sátt í efnahagslífi landsins.
Þessi þróun á sér forsögu og sögunni er alls ekki lokið. Í aðdraganda átaka á vinnumarkaði er grein Guðmundar einkar gagnleg upprifjun. Hún er í heild sinni hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021