Ég geng í hring
Ég geng í hring
í kringum allt sem er.
Og innan þessa hrings er samið
(og höndlað og möndlað um það hvort rétt sé mælt
og hvort mjölið sé maðkað
karpað og þjarkað um makríl og menningu
verðmæti og flæði og frelsi fjármagn
og fólk. Plómur og hvítvín
og fetasmjörosta
staðlað eðli hinnar kórréttu döðlu
og nýræktarhéruð til handa hagsmunasamtökum hugmyndanna.)
Á markaðstorgi hins jarðneska friðar
þar sem enginn er skotinn.
Ég geng í hring
í kringum allt sem er.
Og utan þessa hrings
er hagsmunum Íslands best borgið.
Guðmundur Andri Thorsson
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021