Drýldni
Við erum orðin vön því hér innanlands að forsætisráðherrann grobbi úr hófi þegar hann tekur til máls og segi ósatt þegar hann sperrir sig. Ferskustu dæmin um það voru úr stefnuræða hans við þingsetningu nú í mánuðinum. Þar til í gær. Þá varð til nýtt dæmi þegar ráðherrann fékk drýgindakast á þingi Sameinuðu þjóðanna.
Orð hans flug vítt um geim þegar hann sagði fyrir framan heiminn allan að Ísland hefði „nýlega heitið því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030“. Yfirlýsing hans vakti ánægju; álitið var að hann hefði sagt satt orð. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sagði að orð ráðherrans væru afdráttarlausari um skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum en áður. „Við höfum sagt að við munum taka við svokölluðu „sanngjörnu hlutfalli“ þangað til núna, þegar forsætisráðherra segir að við munum draga úr losun um 40%, náist samningar.“
Svo rann upp næsti dagur, nýr og fagur. Fram á sviðið gekk aðstoðarmaður ráðherrans til þess að túlka og leiðrétta orð yfirboðara síns. Hann sagði að ræða hans marki ekki stefnubreytingu í loftslagsmálum af Íslands hálfu. „Þetta er ekki einhliða yfirlýsing um 40% lækkun af Íslands hálfu heldur markmið um 40% lækkun í samfloti með Evrópusambandinu,“ sagði hann í viðtali við Mbl.is. og bætti því við að stjórnvöld á Íslandi hyggist enn taka við „sanngjörnu hlutfalli“ af heildarminnkun losunar gróðurhúsalofttegunda á Evrópusambandssvæðinu en hafi ekki skuldbundið sig til þess að draga úr losun um 40%.
Um framgöngu ráðherrans skrifar Jónas Kristjánsson á síðu sína, Jónas.is undir fyrirsögninni Lýgur að umheiminum:
„Sigmundur Davíð og ríkisstjórn hans stefna að smíði tveggja stærstu kísilvera í heimi. Alls munu þau losa nærri milljón tonn af kolefni út í andrúmsloftið. Það er fimmtungs viðbót við núverandi 4,5 milljón tonn. Samt taldi forsætis sér kleift að stíga í gær á stokk á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Lofaði 40% minni losun kolefnis. Sigmundur Davíð er ekki feimnari við að ljúga að umheiminum en að Íslendingum. Ekkert, sem hann segir, er í sambandi við veruleikann. Málar bara upp þann sýndarveruleika, sem hann telur henta aðstæðum hverju sinni. Þannig komst hann til valda og þannig hyggst hann halda völdum. Með nýrri lygi.“
Og ein „gróðurhúsalofttegunda“- frétt birtist rétt í þessu á Eyjunni.is. „Það er eitthvað ótrúlega brenglað við þá hugmynd að ætla að koma fyrir 16 eldsneytisdælum í hverfi sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem umhverfisvæn byggð í hæsta gæðaflokki.“ Þetta skrifar Guðmundur Kristján Jónsson, borgarsmiður, á heimasíðu sína um þær fyrirætlanir bandarísku keðjunnar Costco að setja upp 16 bensíndælur utan við fyrirhugaða risaverslun í Kauptúni í Garðabæ.“ Þá bendir Guðmundur „á að á svæðinu sé vatnsból Gjáaréttar, Vatnsgjá, auk þess sem Vífilsstaðahraunið norðan Urriðaholts er friðlýst. Þá njóti Urriðavatnið hverfisverndar í aðalskipulagi Garðabæjar og í yfirstandandi vinnu við nýtt aðalskipulag sé lögð mikil áhersla á umhverfismál og sjálfbæra þróun.“
Að slíkur gjörningur sem þarna er greint frá skuli vera í uppsiglingu sýnir hve illa ráðherrann er tengdur því sem hann er að tala um hverju sinni og óvíst hvort sífelld skreytni hans stafar af ofurdrýldni eða vanþekkingu nema hvort tveggja sé.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020