trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 21/07/2014

Draumur hjarðsveinsins

Eftir Steingrím ThorsteinssonSteingrímur Thorsteinsson

Í birkilaut hvíldi ég bakkanum á,

þar bunaði smálækjar spræna.

Mig dreymdi, að í sólskini sæti ég þá

hjá smámey við kotbæinn græna.

 

Og hóglega í draumnum með höfuð ég lá

í hnjám hinnar fríðustu vinu,

og ástfanginn mændi eg í augun hin blá,

sem yfir mér ljómandi skinu.

 

Úr fíflum og sóleyjum festar hún batt,

þær fléttur hún yfir mig lagði.

Þá barðist mér hjartað í brjóstinu glatt,

en bundin var tungan og þagði.

 

Loks hneigir hún andlitið ofan að mér,

svo ilmblæ af vörum ég kenni.

Ó, fagnaðar yndi, hve farsæll ég er,

nú fæ ég víst kossinn hjá henni.

 

En rétt þegar nálgaðist munnur við munn,

að meynni var faðmur minn snúinn,

þá flaug hjá mér þröstur, svo þaut við í runn,

og þar með var draumurinn búinn.

Steingrímur Thorsteinsson (1831-1913)

Flokkun : Ljóðið
1,415