Brennur
Það er eldur
Eldur sem æðir
rífur
leikur
brýtur
Það logar stafna á milli
Og ég vildi að ég ætti til
æðruleysið hans afabróður míns
sem þótti verst að missa af brunanum heima
Hann hafði aldrei séð hús brenna
Stefán Bogi Sveinsson (Brennur, júlí 2014)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021