trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 06/01/2016

Bara ef það hentar mér

Ég berjast skal á móti Bandaríkjaher,Jakob Frímann
en bara ef það hentar mér.
Svo þvæ ég mínar hendur og þvílíkt af mér sver,
ef það er það sem hentar mér.
Ef blökkufólkið sveltur, til bjargar strax ég fer,
en bara ef það hentar mér.

Ef Amnesty er málið, í Amnesty ég fer,
það ágætlega hentar mér.
Þar örlátur ég borga og eiðstafinn sver,
sú ímynd hún hentar mér.
En ef blettur á þá fellur, þá burt ég rokinn er,
bara ef það hentar mér.

Bara ef það hentar mér,
bara ef það hentar mér.
Ég er mjúkur á manninn,
en í borðið svo ég ber,
bara ef það hentar mér.

Ég sit með augun opin og sitthvað fyrir ber,
ég sé það sem að hentar mér;
svo hlusta ég á flest það sem hérna skrafað er
og heyri það sem þóknast mér.
Svo skil ég fyrr en skellur í tönnunum á þér,
ég skil það sem hentar mér.

Bara ef það hentar mér,
bara ef það hentar mér.
Ég er mjúkur á manninn,
en í borðið svo ég ber,
bara ef það hentar mér.

Jakob Frímann Magnússon (Stuðmenn: Listin að lifa, 1989)

Flokkun : Ljóðið
1,371