trusted online casino malaysia
Úlfar Þormóðsson 11/10/2015

Auðmýkt

„Ég er kannski ekki búinn að ákveða mig,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í þættinum Á Sprengisandi í morgun (11.10.´15) þegar hann var spurður að því hvort hann myndi bjóða sig fram til forseta á næsta ári.

olafur-ragnar-landsbankamenn

Vísir.is prentar upp úr viðtalinu. Hér eru nokkrar perlur úr því:

„Við ræðum þetta, við Dorrit og fjölskyldan. Þetta er ekki bara spurning um mig, þetta er spurning um hana og dætur mínar … Allir þeir sem vilja að ég haldi áfram, sem eru greinilega margir og víða, ég fann það bara á landsleiknum í gær, þegar ég mæti í skóla og annarstaðar er alltaf að koma fólk að mér og segja að ég eigi að halda áfram, það sýnir mér að þetta er í hugum margra … Þjóðin er að velta þessu fyrir sér og ég er ekkert að trufla þá umræðu þó ég bíði með það þangað til í nýársávarpinu að tilkynna mína afstöðu … Ég hef aldrei talið mig ómissandi og ef ég tek þá ákvörðun um að hætta vona ég að því verði sýndur fullur skilningur.“

Úlfar Þormóðsson
Latest posts by Úlfar Þormóðsson (see all)
Flokkun : Efst á baugi
2,484