Athlægi
Formaður Framsóknarflokksins „lenti“ í sjálfsköpuðu stormviðri og gerði sig að athlægi. Hann varð heimsfrægur fyrir vikið en hefur ekki ennþá áttað sig á niðurlægingu sinni. Fyrir vikið hrekst hann nú undan þeim flokksfélögum sínum sem sjá hvernig komið er fyrir honum.
Formaður og varaformaður fjárveitingar „lentu“ í skýrslugerð fyrir meirihluta fjárlaganefndar um löngu upplýst mál. Vildu gera það að óþurftarmáli og kenna það sameiginlegum pólitískum andstæðingi sínum. Þau unnu skýrsluna sjálf og greiddu sjálf fyrir hana 90.000.- úr eigin vasa, hefur mbl.is eftir varaformanninum. Það kom ekki fram hjá honum hvort þau fengu jafnhá höfundarlaun, formaðurinn og varamaðurinn. En þau komust í alla fjölmiðla með ritverkið; formaðurinn til að sækja fram, varaformaðurinn til að verjast sjálfum sér og orðalagi sínu í skýrslunni. Það liðu svo ekki langar stundir frá því að þau lögðu höfundarverkið fram þar til þau voru orðin að athlægi vítt um land.
Það ku vera ókristilegt að atast í þeim sem verða sér til skammar. Það skal því ekki gert. En á meðan þau sleikja sárin væri afskaplega kristilegt af meðhöfundum skýrslunnar að játa sinn hlut í henni. Þeir hafa hvort sem er ekki fengið svo stóran part af aðhlátrinum að þeir geti ekki tekið eitthvað meira á sig. Því að þarna eru engir ómerkingar á ferð; þingmennirnir Ásmundur Einar Daðason, Haraldur Benediktsson, Páll Jóhann Pálsson og Valgerður Gunnarsdóttir.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020