Aflausn á útsöluverði / og æra á tombóluprís. Harður dómur um tillögur um skattagrið
Framkomnar tillögur um grið og refsileysi við skattalagabrotum skila „hlálegum“ niðurstöðum.
Þetta er mat Indriða H. Þorlákssonar fyrrverandi ríkisskattstjóra í grein sem hann skrifar í Herðubreið.
Þar rekur Indriði margvíslega galla á tillögunum og færir ítarleg rök fyrir máli sínu. Hann segir að ef tillögurnar verða samþykktar óbreyttar sé þetta besta auglýsingin fyrir framkvæmd þeirra:
Hinum íslenska útrásamerði
með aura í skattparadís
býðst nú aflausn á útsöluverði
og æra á tombóluprís.
Grein Indriða er hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021