Af fulltrúum græðginnar
Kjarninn skýrðir frá því í dag, 20.01.´17, að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur hafa lagt til að Malbikunarstöðin Höfði, sem er að fullu í eigu borgarinnar, verði seld. Borgarfulltrúarnir halda því fram að færa megi lagarök fyrir því að eignarhald borgarinnar á malbikunarstöðinni sé ólögmætt.
Áður hafði sami miðill greint frá því, upp úr samantekt Viðskiptaráðs Íslands á öllum útboðum Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar á árunum 2008-2016, að Höfði hafi verið með 73 prósent markaðshlutdeild í malbikunarverkefnum á vegum borgarinnar og 24 prósent markaðshlutdeild í verkefnum sem Vegagerðin býður út.
Það er augljóst að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bera tillöguna fram fyrir félaga sína í Viðskiptaráði. Ráðið heldur því fram, þrátt fyrir 100 miljón króna hagnað af rekstri Höfða, „að atvinnureksturinn skapi áhættu fyrir íbúa borgarinnar og eignarhaldið því ósamrýmanlegt … um … hagkvæma opinbera þjónustu“.
Samkvæmt ársreikningi 2015 voru tekjur Höfða 1,7 milljarðar króna og hagnaður 100 milljónir króna. Heildareignir voru rúmur milljarður króna og ársverk samtals 37 talsins. Þrátt fyrir þennan góða hagnað (lesist; vegna hagnaðarins) heldur Viðskiptaráð því fram að eignarhald borgarinnar á Höfða sé “tímaskekkja … og áhætta er tekin með fjármuni skattgreiðenda. Tímabært er að Reykjavíkurborg taki af skarið og hætti framleiðslu og lagningu malbiks fyrir innlendan markað. Þannig er hagsmunum borgarbúa best borgið,“ segja flokksbræður tillögugerðarmannanna í borgarstjórn.
Með hliðsjón af þeim slysum sem orðið hafa við sölu á ýmsum rekstrareiningum borgarinnar á árum áður er ástæða til þess að brýna meirihlutann til þess að fella tillögu fulltrúa græðginnar, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni. Það er þeirra hlutverk. Þeim mun verða þakkað það.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020