Advice to JJ (1933-1978)
Eftir Hrafn Jökulsson
Allir þessir leigubílstjórar
Allar þessar konur sem hafa ekkert heimilisfang
Allir þessir menn sem sitja enn í rökkvuðu horni knæpunnar
Ekkert
nema árin
á milli okkar
ekkert nema lífið
og svo þessi dauði sem þeim verður
svo tíðrætt um
Ljóð brúa ekki bil
barnslegra spurninga
(Þú ortir þrjú ljóð eftir því
sem ég kemst næst: eitt var til Jörgens Jörgensen,
en einsog þú manst var Jörgen Jörgensen
fangavörður í sænsku fangelsi. Það var á ensku.
Annað var til danskrar stúlku sem þú elskaðir.
Ljóðið heitir advice to Judith.
Ég hef aldrei lesið það og aldrei hitt Judith.
Þriðja ljóðið sem þú ortir var nú bara til
Krúsjovs í orðastað skrifstofumanns í Vesturbænum.)
En þessi ljóð geta ekki svarað spurningunum
ekki gefið svörin
ekki frekar en leigubílstjórarnir
ástkonurnar eða vinir þínir sem enn sitja yfir glasinu
Nei
ég fann ekki einu sinni gröfina þína í kirkjugarðinum
og samt ertu allsstaðar ennþá
og þær stundir hafa komið að ég hef sagt vitlaust
til nafns í leigubílum eða einfaldlega þagað
Þú valdir auðveldustu leiðina
einsog svo margir sem gengu grýttan veg og
sáðu fræjum í frjóa jörð
Nú
ertu mynd í gömlu albúmi
ég á nokkrar af bókunum þínum
ljóðið til Krúsjovs er uppi á vegg
einu sinni hefur þú vitjað mín í draumi
Þú
sagðist vera farinn til landsins
sem fuglasöngurinn fer til þegar hann hljóðnar
mér finnst
ef ég má vera hreinskilinn
að þú hefðir átt að taka leigubílstjórana
ofmáluðu konurnar og barlómana með þér
fuglasönginn
hefðir þú betur skilið eftir
Hrafn Jökulsson (Húsinu fylgdu tveir kettir, 1991)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021