trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 27/04/2020

Takið IKEA á þetta

Karl Th. Birgisson skrifar

Hvað segiði? Ferðast innan lands í sumar? Það er nú svo.

Því var haldið fram í útvarpinu í dag að gistinótt með morgunmat kostaði um 30 þúsund krónur, sem væri kannske ekkert svo dýrt. Það er nú svo.

Lausleg markaðskönnun Herðubreiðar leiðir reyndar í ljós að víða er verðið mun hærra, en látum það vera. Hugsum um 30 þúsund.

Tveggja vikna frí kostar þá um 420 þúsund, bara fyrir gistinguna. Við erum ekki einu sinni byrjuð á veitingum, þrjú þúsund króna hamborgara, vöfflu með rjóma á 800 og tertusneið á sextánhundruðkall.

Eitthvað segir mér að það verði ekki biðröð út á hlað eftir þessum kostakaupum. Því miður, því að við þurfum að halda sem flestum gististöðum gangandi þar til kófið er gengið yfir.

Gisting er eðlisólík flestri annarri söluvöru. Ef við fáum ekki viðunandi tilboð í bíl eða íbúð getum við beðið eftir öðru hagstæðara. Það virkar ekki þannig í gistibransanum.

Gistinótt sem selst ekki fer og kemur aldrei aftur. Verður aldrei seld – ekki einu sinni fyrir þúsundkall. Það sama gildir um flugsæti og bílaleigubíla.

Hvað er þá til ráða? Hvernig er hægt að halda sem flestum gististöðum sæmilega gangandi? Eflaust verður mörgum einfaldlega lokað í lengri eða skemmri tíma, en fyrir hin er hér alveg ókeypis hugmynd – þjófstolin beint frá IKEA.

Rekstrarkostnaður á gististöðum er allajafna svipaður óháð því hvort gestirnir eru tólf eða hundrað. Það þarf að eiga fyrir honum. Og hvað kemur það IKEA við?

Matsala IKEA treystir ekki aðeins á framlegð (hagnað) af hverri seldri einingu heldur ekki síður á fjölda gesta. Hún byggir á þeirri einföldu hugmynd að með því að bjóða lágt verð færðu miklu fleiri viðskiptavini. Nýting á starfsfólki, húsnæði og tækjum verður miklum mun betri. Og viðskiptavinirnir ánægðari.

Þessi leið hefur gert IKEA að vinsælasta veitingastað á Íslandi.

Hvurnig væri nú að nota þessa þrautreyndu aðferð, kæru gistihúsaeigendur? Þið þurfið að selja gistinætur ef það er opið á annað borð. Óseldar gistinætur koma aldrei aftur.

Altjent ætti að vera þess virði að prófa. Lækka verðið ofan í svosem tíuþúsundkall í einhvern tíma. Það eru tíuþúsundkallar sem þið fengjuð annars ekki.

1,887