trusted online casino malaysia
Björgvin Valur 23/05/2014

Vísisstjórnin

Alþýðulist á Djúpavogi

Alþýðulist á Djúpavogi

Einhverjir stjórnarliðar hafa sett sig í samband við forsvarsmenn á Djúpavogi og rætt við þá um það ástand sem er að skapast með brotthvarfi Vísis.

Þess er krafist að forsætisráðherrann ræði við íbúa á Djúpavogi og þingmenn eiga að mæta á svæðið til að ræða ástandið og finna lausnir.

Gott og vel, en það er til miklu styttri leið að þessu  öllu saman.  Ráðherrar og þingmenn þurfa ekkert austur á Djúpavog til að komast til botns í málinu.

Gangsterinn er nefnilega í liðinu þeirra; meðlimur Vísisfjölskyldunnar situr á þingi fyrir Framsóknarflokkinn og segist beinlínis vera fulltrúi útgerðarmanna á þingi.

Stjórnarliðar þurfa ekki að gera annað en að snúa sér eilítið í leðurstólunum og spyrja manninn hvurn fjárann þetta eigi að þýða.

Það besta sem íbúar Djúpavogs geta svo gert í sínum málum, er að kjósa Vísisflokkana ekki aftur.

Latest posts by Björgvin Valur (see all)
Flokkun : Pistlar
1,424