trusted online casino malaysia
Björn Valur Gíslason 28/05/2014

Tryggvi Þór – umbúðalaust

Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi þingmaður sjálfstæðisflokksins, er verkefnastjóri, reiknimeistari og talsmaður ríkisstjórnarinnar um stóru millifærsluna. Hann hvetur þá sem geta til að leggja séreignasparnað sinn í að greiða niður húsnæðisskuldir og hefur reiknað út þannig geti fólk fengið allt að 40% ávöxtun á peningana sína. Slík ávöxtun þekkist hvergi í hinum vestræna heimi, a.m.k. ekki í löglegri starfsemi og því vonlegt að margir hyggist fara að ráðum Tryggva.tryggvi-mishkin-jens

EN.

Hann bendir einnig réttilega á að þessi leið standi ekki öllum til boða. Hann beinir því þess vegna til þeirra sem eru fjárhagslega illa staddir og eru í vanda sem ekki er útséð með hvernig fari, að láta þetta eiga sig. Séreignakafli millifærslunnar er ekki fyrir svoleiðis fólk heldur fólk sem hefur efni á að spara og greiða niður lánin sín. Þessi leið mun því ekki að leysa nokkurn vanda heldur þvert á móti verða til þess að auka fjárhagslegt svigrúm efnameira fólks á kostnað okkar allra.

Það má félagi Tryggvi Þór Herbertsson eiga umfram marga flokksbræður sína og systur að hann segir hlutina umbúðalaust.

Latest posts by Björn Valur Gíslason (see all)
Flokkun : Pistlar
1,339