trusted online casino malaysia
Guðmundur Gunnarsson 12/05/2015

Skrokkalda – Trójuhestur Landsvirkjunar

Í dag tekur Alþingi fyrir rammaáætlun og gera tilraun til að koma í gegn breytingatillögu um að færa m.a. Skrokkölduvirkjun í nýtingarflokk. Skrokkalda er staðsett á miðju landsins á ósnortnum Sprengisandi í jaðri Vatnajökulsþjóðgarðs. Þetta er tiltölulega lítil virkjun eins virkjanasinnar eru óþreytandi við að benda á. En málið er ekki svona einfalt því framkvæmdir þarna munu hafa vondar afleiðingar fyrir ásýnd hálendisins ef tillagan nær í gegn.???????????????????????????????

 

Skrokkölduvirkjun er nefnilega aðgöngumiði Landsvirkjunar inn í miðju ósnortinna víðerna Íslands. Trójuhestur virkjanasinna. Hún er órjúfanlega tengd Sprengisandslínu og uppbyggðri hraðbraut þvert yfir landið með sjoppum og hótelum. Skrokkölduvirkjun og Sprengisandslína þurfa á hvor annarri að halda.

 

Að virkja uppi á miðjum Sprengisandi þar sem allra veðra er von, kallar líka á heilsársveg. Skrokkölduvirkjun er því ekki það smotterí sem látið er í veðri vaka, heldur mun gjörbreyta landslaginu með háspennulínum og uppbyggðum heilsársvegum.

 

Í vinnu Rammaáætlunar er notast  við matskerfi þar sem ósnortin svæði skora hátt. Það er því eitt af þeim atriðum sem stjórnmálamenn og Landsvirkjun byrja ætíð að ráðast að. Takist þeim að koma Skrokkölduvirkjun í gegn fellur matið á náttúruverðmætum í miðju landsins og eftirleikurinn virkjanasinna verður auðveldur við Þjórsárver, Hágönguvirkjun, háspennulínu yfir landið og upphleyptum þjóðvegi þvert yfir landið.

 

Þær framkvæmdir mun valda ómetanlegum skaða á stærstu ósnortnum víðernum Íslands, reynda einnig Evrópu. Það mun koma í veg fyrir að við getum skilað þessum verðmætum til barna okkar og barnabarna. Skrokkalda er á vinsælasta hluta Sprengisandsleiðar þar sem öræfakyrrðin er alger í heimi sands og jökla.

 

Þetta útspil er árás að hjarta Íslands. Allir unnendur íslenskrar náttúru mótmæla og munu halda áfram að mótmæla þessum áformum. En þarna eru ekki bara hagsmunir náttúrunnar í húfi heldur ekki síður hagsmunir ferðaþjónustunnar og tekjuöflun þjóðarinnar. Ferðaþjónustan er orðin að öflugustu stoðinni í tekjuöflun þjóðarinnar.

 

Hér ákflega greinargóð lýsing á Skrokkölduvirkjun

Flokkun : Efst á baugi
1,339