Má ekki bjóða þér svolítið saffran?
Þetta um Maríu Antonettu og kökurnar er víst bara vitleysa – drottningin unga mun að vísu hafa tjáð sig eithvað óheppilega um brauðverðið í París milli þess sem hún gekk um og lék hjarðmey í nánd Versala, en hún sagði aldrei þetta um kökurnar.
Nú hefur hinn ágæti alþingismaður Sigrún Magnúsdóttir aftur á móti fundið út að á svipuðum tíma og hjarðmærin umhugsaði hveitivörumálin í Frans hafi Íslandslýður flutt inn það góða krydd saffran, sem er einhver dýrasta vara í heimi miðað við þyngd. Það hefur ekki væst um landann á þessum tímum frekar en Maríu Antonettu.
Sigrún neitar því alls ekki að móðuharðindin séu söguleg staðreynd. En vísast hafa Skaftáreldar verið blásnir upp af neikvæðum niðurrifsöflum í félaginu Vonlausa Ísland, þessu fólki sem bara getur ekki sætt sig við að samfélagið okkar er einsog samfélagið okkar er og hefur alltaf verið.
Fólk er almennt alltof neikvætt á Íslandi. Má ekki bara bjóða þér að láta barnabörnin borga skattana þína? Hárlitun á stofu? Bankabónus? Eða viltu kannski svolítið saffran?
Mörður Árnason, 9. apríl 2014
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021