Konan sem grét
Þegar tillögur um lækkun húsnæðisskulda voru kynntar fyrir þingflokki framsóknarflokksins, brast ein þingkona flokksins í grát. Hún grét af skömm yfir því að hafa logið að kjósendum sínum. Hún grét af skömm yfir því að flokkurinn hennar ætlar hiklaust og án málalenginga að svíkja stærsta kosningaloforð í 100 ára sögu flokksins. Stærsta loforð allra tíma. Loforð sem leiddi til kosningasigurs og forystu framsóknar í ríkisstjórn með sjálfstæðisflokknum.
Hvar er hún nú, þingkonana sem grét af skömm yfir sviknum loforðum? Hvað finnst henni um niðurstöðuna http://www.ruv.is/frett/hugsanlegt-ad-afturkalla-hluta-adgerdanna eins og sjálfur verkefnastjórinn hefur lýst henni fyrir alþjóð?
Hefur hún kannski ekki verið spurð og ef ekki – þá hvers vegna?
Það er skiljanlegt að þingkonan hafi grátið og skammast sín en að sama skapi óskiljanlegt að ekki hafi brotist út fjöldagrátur í þingflokknum á umræddum fundi. Það bendir til þess að það sé aðeins einn framsóknarmaður á Alþingi sem kann að skammast sín.
Hinir virðast hafa logið úr sér alla glóru.
- Hugsanlega afdrifaríkur dómur - 26/03/2018
- Vandi Vinstri grænna - 23/01/2018
- Gamlar og vondar hugmyndir - 08/01/2018