trusted online casino malaysia
Myndaalbúm Margrétar 17/12/2014

Jólasveinninn áður en honum var nappað

3c13695r

 

Jólasveinar þekkjast í fjölmörgum löndum og ýmsum myndum. Fyrirmynd margra þeirra var heilagur Nikulás sem var biskup í borginni Mýra í Tyrklandi á 4. öld og verndari kaupmanna, sæfarenda, menntasetra og barna.

Meðfylgjandi mynd er tekin árið 1895, áratugum áður en Coca Cola fór að nota Sveinka í auglýsingar sínar á 4. áratug síðustu aldar og festi enn frekar í sessi það útlit sem nú er kunnuglegast jafnt á íslenskum jólasveinum sem erlendum. Á þessari mynd má sjá að útlit hans og ímynd í lok 19. aldar er þó farið að sveigjast ansi mikið í átt að því sem við þekkjum þótt hann sé í mokkakápu og með prjónaða húfu.

Hann er allavega sætur.

 

Mynd: Library of Congress.

Latest posts by Myndaalbúm Margrétar (see all)
1,456