trusted online casino malaysia
Björn Valur Gíslason 16/12/2014

Hrós til Villa Bjarna

Vilhjálmur BjarnasonYfirlýsing Vilhjálms Bjarnason um að það sé „öllum til hagsbóta að hinir efnaminni kaupi notuð heimilstæki af hinum efnameiri“ er dýpri og merkingarmeiri en ætla mætti við fyrstu sýn.

Í fyrsta lagi felst í henni viðurkenning á því að aðgerðir hægristjórnarinnar hafi það að markmiði að því að létta undir með hinum efnameiri.

Í öðru lagi felst í henni viðurkenning á því að það markmið hafi náðst.

Í þriðja lagi felst í orðum Vilhjálms viðurkenning á því að bilið á milli efnameiri fólks og hinna sé að aukast enda felst það í raun í markmiðinu sjálfu.

Í fjórða lagi  vitnar yfirlýsing Vilhjálms um að ríkisstjórnin og fylgismenn hennar hafi ekki enn gefist upp á löngu úreltri brauðmolahagfræði.

Í fimmta lagi má af þessum orðum Vilhjálms ráða hvernig umræðan er í ríkisstjórnarflokkunum um afleiðingar efnahagsstefnu þeirra.

Vilhjálmur Bjarnason hefur veitt okkur ágæta sýn inn í hugarheim þingliðs ríkisstjórnarflokkanna.

Það má hrósa honum fyrir það.

Latest posts by Björn Valur Gíslason (see all)
Flokkun : Pistlar
2,631