Hér stilltu guðir streng
Hér stilltu guðir streng,
hann struku dægrin blíð;
þann óm til eyrna bar
mér árblær forðum tíð.
Ég nem hann ljósar nú
er nálgast rökkrið svalt.
Svo fer einn dag að flest
mun fullnað, jafnvel allt.
Þorsteinn frá Hamri (Allt kom það nær, Mál og menning, 2011)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021