Gunnar Þorsteinsson imam
Gamall og góður samstarfsmaður, Sverrir Agnarsson, varpar fram spurningu sem okkur er hollt að hugsa um.
Hann hefur eins og fleiri fylgzt með kostulegum lýsingum á lífinu í kringum Gunnar í Krossinum, meintum kynferðisbrotum, kúgun safnaðarins á konum og fleiru en hér er tóm til að rekja.
Þetta kemur nú upp á yfirborðið vegna þess að blaðamönnum Pressunnar hefur verið stefnt fyrir að segja frá ruglinu og ofbeldinu þarna í þeim kristingjunum.
DV hefur greint frá þessu mjög skilmerkilega. Fáið ykkur popp og kók.
En sumsé. Hann Sverrir spyr einfaldlega: Hvernig ætli umfjöllunin væri ef í hlut ætti forstöðumaður eða ábyrgðarmaður múslimasöfnuðar?
Ætli myndi skorta upphrópanir um þá alla saman og illmennskuna? Skyldu nú kannske verða settar á nokkrar umræður um hvernig íslenzkt samfélag umturnast og spillist þegar við hleypum þessum bölvuðum íslamistum inn í landið?
Slíkar spurningar hreyfa við okkur, og bara af einni ástæðu:
Við vitum svarið.
- Möskvar minninganna (XXI): Gleðimont - 12/08/2019
- Um gamlar kærustur og nýjar - 02/07/2019
- Möskvar minninganna (XX): Með hitamælinn í rassinum - 30/06/2019