trusted online casino malaysia
Björn Valur Gíslason 08/04/2014

Er öllum virkilega andskotans sama?

Sigurður Ingi Jóhannsson varaformaður framsóknarflokksins og ráðherra átti á sínum tíma sæti í þverpólitískri þingmannanefndsem vann úr skýrslu RNA um Hrunið. Í einni ræðu sinni um málið ræddi Sigurður Ingi mikið um þann skort sem var á formestu við ákvarðanatöku og afgreiðslu mála í aðdraganda Hrunsins.
Orðrétt sagði hann um það: „Við (nefndarmenn) vorum sammála og samstiga í vinnunni um þá þætti sem koma fram í rannsóknarskýrslunni og lýsa sér í hörðum áfellisdómi og alvarlegum ávirðingum á starfshætti Alþingis, verklag og óformfestu stjórnvalda.“
Einnig: „Það er sorglegt að lesa 19. og 20. kafla í 6. bindi rannsóknarskýrslunnar þar sem formleysið, ábyrgðarleysið, skortur á verkferlum, allt þetta stendur einhvern veginn upp úr bókinni eins og klippimyndir í bók sem opnast þegar maður opnar hana. Stundum verður maður hálfþungur yfir þessum lestri.“
Og: „Við verðum að tileinka okkur meiri formfestu og fagmennsku, þótt okkur finnist það leiðinlegt.“
Þeir sem nenna að lesa ræðu Sigurðar Inga geta síðan fundið fjölmörg fleiri dæmi.
Nú er Sigurður Ingi ráðherra í ríkisstjórn undir forystu forsætisráðherra framsóknarflokksins sem skiparleynilega ráðgjafahópa um mikilvægustu mál þjóðarinnar. Launaða hópa sem hvorki halda fundargerðir né uppfylla nein skilyrði um lágmarksformfestu eða gera nokkrum grein fyrir störfum sínum nema þá forsætisráðherranum. Leynilegir hópar á vegum stjórnvalda sem beinlínis er ætlað að fara framhjá lýðræðislega kjörnu þingi er einhvern veginn svo brjálæðislegt að það nær ekki nokkru tali.
Hverskonar stjórnarfar er þetta að verða? Hvernig stendur á því að fjölmiðlar í vestrænu lýðræðisríki eins og Íslandi, fara ekki hamförum í þessu máli og gegn þessum stjórnarháttum, sem beinlínis vega að rótum lýðræðisins?
Er öllum virkilega andskotans sama?

Latest posts by Björn Valur Gíslason (see all)
Flokkun : Pistlar
1,358