Ekki einkamál Bjarna
Bjarni Benediktsson formaður sjálfstæðisflokksins vill selja vænan hlut ríkisins í Landsbankanum. Hann segist þó hvorki vera búinn að gera það upp við sig hvað stór sá hlutur á að vera né hvernig að sölunni verður staðið.
Hann talar eins og um sölu á persónulegri eign sinni sé að ræða sem öðrum komi ekki við hvernig hann ráðstafar.
Málið er heldur flóknara en það.
Á síðasta degi þingsins fyrir jólin 2012 voru samþykkt lög um hvernig á að standa að sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Landsbanki Íslands er þar sérstaklega nefndur. Samkvæmt þeim lögum (sem enn eru í gildi) er heimilt að selja allt að 30% hlut í bankanum að nokkrum skilyrðum uppfylltum.
Bankasýsla ríkisins skal gera tillögu um sölu og annast sölu á eignarhlutum ríkisins.
Málið skal lagt fyrir tvær þingnefndir, efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd.
Seðlabankinn skal veita umsögn um hvort jafnræðis sé gætt á milli væntanlegra kaupenda.
Síðast nefnda atriðið kom inn í lagafrumvarpið að tillögu Eyglóar Harðardóttur ráðherra og Lilju Mósesdóttur. Því er ætlað að koma í veg fyrir að kaupendur geti keypt íslenskar krónur á afslætti í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri og skapað þannig ójafnræði á milli hugsanlegra kaupenda.
Það kemur ekki á óvart að Bjarni Benediktsson lagðist hart gegn þessari lagasetningu eins og sjá má á umræðum um málið og atkvæðagreiðslu. Hann vill hafa frjálsar hendur um hvernig sameiginlegum eignum okkar allra er ráðstafað.
Það gekk svo vel síðast.
- Hugsanlega afdrifaríkur dómur - 26/03/2018
- Vandi Vinstri grænna - 23/01/2018
- Gamlar og vondar hugmyndir - 08/01/2018