Ræstitæknar í tjöldum
Þær hafa orðið táknmynd niðurskurðarkröfu ESB á grísk stjórnvöld, konurnar sem áður þrifu fjármálaráðuneytið í Aþenu en var sagt upp í hagræðingarskyni árið 2013.
Síðan þá hafa þær haldið úti tjaldbúðum þar sem oft er margt um manninn en þær krefjast þess að fá vinnuna aftur.
Eftir stjórnarskipti í Grikklandi las ég frétt um að þær hefðu nú allar verið endurráðnar. Ég var því hissa þegar ég gekk fram á tjaldbúðir þeirra í gær.
Aðspurðar segja þær þetta þó allt standa til bóta – nú vanti aðeins eina undirskrift svo grísk stjórnvöld geti ráðið þær aftur til starfa. Hvenær það nákvæmlega verður veit þó enginn. Þær eru því enn í tjöldunum en ekki við störf og bíða þess sem verður eins og gríska þjóðin á meðan hin nýju stjórnvöld reyna að semja við Evrópusambandið.
- 4. apríl 2016 - 05/04/2016
- Sólin rís á ný - 22/12/2015
- Viðmælendur Bylgjunnar - 25/11/2015