Sólarglærur
Það eru umbrotatímar í stjórnmálum. Í dag (22.08.´16) vaknaði einn ráðherra upp af djúpsvefni og annar áttaði sig.
Í marga mánuði hafa landsmenn horft á Framsóknarflokkinn liðast í sundur vegna spillingarmála. Hingað til hefur forustan sagt að þetta sé alls ekki raunin. Síður en svo. Þar til í dag. Þá mátti lesa í Fréttablaðinu klausu, sem höfð var eftir varaformanni flokksins og forsætisráðherra landsins: „Það er hins vegar enginn vafi að við erum í ákveðnum vandamálum í forystusveit flokksins.“
Merkilegt.
Og.
Þau sannindi komust í hámæli síðustu daga að meira en 23 þúsund aldraðir og öryrkjar borguðu rúmlega tvöfalt meira í tannlæknakostnað á síðasta ári en reglugerð heilbrigðisráðherra kveður á um. Svo gerðist það í kvöld að umræddur ráðherra birtist velvakandi í fréttum Sjónvarpsins og sagðist vonast til þess að geta greitt öldruðum og öryrkjum lögbundinn (lög frá 2013) tannlæknakostnað á næsta ári.
Á næsta ári. Þá, já, þá mun birta upp. Sanniði til. Á næsta ári.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020