Rýmingarsala
Það á að fara að selja banka, bankana okkar, lýðsins.
Undirbúningur er hafinn. Um helgina bárust fréttir af því að hagnaður Landsbankans árið 2016 hefði hefði minnkað verulega miðað við næsta rekstrarár þar á undan. Í gær, 13.02. 2017, var svo skýrt frá því að hagnaður Arionbanka hafi minnkaði um helming frá ári til árs. Og innan tíðar verða birtar tölur um samdráttinn í Glitni.
Samtímis þessu eru gefnar alls kyns skýringar á samdrættinum, sumar trúverðugar, aðrar ekki. Og lítið gert úr miljarðatuga gróða bankanna. Í fréttum er að sjálfsögðu ekki minnst á hið augljósa: Það er verið að vinna í haginn fyrir gróssera; hina væntanlegu kaupendur. Þetta er einföld kaupsýsla og augljós: Því minni hagnaður sem er af rekstri fyrirtækis því lægra er söluverð þess. Og það á að fara að selja bankana okkar.
Að setja upp reikninga bankanna með þeim hætti, að svo sýnist sem samdráttur sé í hagnaði þeirra, mun leiða til þess að umræðan næstu misserin mun snúast um það hversu óhagkvæmt sé að reka baka á Íslandi. Verðgildi þeirra verður talað niður.
Það er þannig sem á að selja þá, bankana okkar. Á útsöluverði.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020