trusted online casino malaysia
Úlfar Þormóðsson 04/07/2019

Ódýr orð?

Opinber stofnun, sem vafalaust vinnur samkvæmt gildandi lögum, hefur vísað tveimur fjölskyldum úr landi. Þær samanstanda af  tveimur einstæðum foreldrum og fjórum börnum og hafa dvalið hér í marga mánuði, börnin gengið í skóla og eignast félaga og vini. Þeim líður vel hérlendis. En. Nú stendur til að senda börnin og foreldra þeirra til Grikklands. Þar fara þau í búðir sem ekki eru mönnum bjóðandi.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er fjallað um flótta­fólk. Samkvæmt Kjarnanum í dag, 04.07.´19, segir þar: 

„Aldrei hafa fleiri verið á flótta vegna stríðs­átaka, ofsókna og umhverf­is­vár. Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flótta­mannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum. Mannúðar­sjón­ar­mið og alþjóð­legar skuld­bind­ingar verða lögð til grund­vallar og áhersla á góða og skil­virka með­höndlun umsókna um alþjóð­lega vernd. Auk þess verður tryggð sam­fella í þjón­ustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd.”

Það þarf ekki háskólagráðu til þess að átta sig á því hvað í þessum orðum felst. Og ekki heldur í eftirfarandi flokksráðssamþykkt Vinstri grænna, sem sitja í forsæti ríkisstjórnarinnar: Þar er þetta samkvæmt Kjarnanum:

“[…]­Mik­il­vægt er að tryggja að börn umsækjenda um alþjóð­lega vernd búi við ásættanlegar aðstæður og fái fljótt inni í skóla, á meðan mál fjölskyldunnar bíður afgreiðslu. Sér­stak­lega er mik­il­vægt að standa betur að mót­töku og þjón­ustu við fylgd­ar­laus börn.”

Þetta hvort tveggja munu mörg okkar hafa í huga í mótmælagöngu í dag vegna þeirrar ákvörðunar að vísa áðurnefndum tveimur fjölskyldum í ömurleika flóttamannabúðanna. Einhverjir göngumenn munu þó hanga í þeirri von að ráðamenn lesi sínar eigin samþykktir, standi við sín dýru orð, grípi inn í þegar í stað og komi í veg fyrir brottflutning flóttabarnanna og búi svo um hnútana að ekki komi nokkru sinni til svo miskunnarlausrar meðferðar á fólki hérlendis.

Latest posts by Úlfar Þormóðsson (see all)
Flokkun : Efst á baugi
1,471