Misskilningur Bjarna Ben.: Skattar eru ekki slæmir. Þeir eru forsenda fyrir góðum lífskjörum
Það er freistandi að ímynda sér, að ef tekjuskattur væri felldur niður, þá myndu ráðstöfunartekjur okkar hækka myndarlega, en það er tálsýn: raunin er sú að launin okkar eru einmitt háð því að við borgum þessa skatta. Launin okkar væru hvergi nærri eins há og þau eru í dag, ef hér væri ekki öflugt ríki sem getur séð bæði um að framfylgja lögum um eignarrétt en líka um að skapa frið, öryggi, stöðugleika og jöfn tækifæri.
Þetta er kjarninn í bráðfínni grein sem Jean-Rémi Chareyre skrifar í Herðubreið og er holl lesning í aðdraganda alþingiskosninga.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021