Ef með spurn
Ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu sagt fyrir kosningar að þeir ætluðu að svelta Landsspítalann af rekstrarfé, hefðu þeir þá náð það góðri kosningu að þeir væru við stjórn nú?
Ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu fyrir kosningar sagst ætla að efla einkarekstur í heilbrigðiskerfinu með greiðslum úr ríkissjóði, hefðu þeir þá náð það góðri kosningu að þeir væru við stjórn nú?
Ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu sagt fyrir kosningar að þeir ætluðu að einkavæða framhaldsskólana, hefðu þeir þá náð það góðri kosningu að þeir væru við stjórn nú?
Höfum við kjósendur gert okkur grein fyrir því – ef við gerum ekkert í málinu – að ríkisstjórnarflokkarnir geta, í rúm þrjú ár enn, haldið áfram að gera það sem þeir sögðust, fyrir kosningar, ekki ætla að gera ef þeir kæmust til valda?
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020